Kennsluskipulag vetrarins
Við höldum afram með Byrjendalæsi sem er samvirk nálgun í læsiskennslu barna á yngsta stigi. Samvirk aðferð fellur mitt á milli eindaraðferða og heildaraðferða. Eindaraðferðir byggja á því að umskráningarferlið sé línulegt sem leiðir til þess að tæknilegir þættir læsis eru þjálfaðir í aðskildum einingum og í ákveðinni röð. Gengið er út frá því að ferlið byrji á ritmálinu með því að umskrá rittákn í málhljóð. Nemendur læra fyrst bókstafina og hljóð þeirra og tengja þá síðan í orð og orð í setningar og þær síðan í merkingabærar heildir. Hljóðaaðferðin er ein þeirra aðferða sem tilheyra eindaraðferðinni. Heildaraðferðin er orðaaðferð sem gengur í eina átt þ.e. frá hinu stóra til hins smáa.
Byrjendalæsi sækir innblástur til kenninga um hugsmíðahyggju og nám án aðgreiningar og gert er ráð fyrir að börn læri best í samfélagi jafningja, með samvinnu, stigskiptum stuðningi og hvers konar námsaðlögun sem auðveldar kennurum að koma til móts við ólíkar þarfir þeirra og áhugasvið. Við samsetningu Byrjendalæsis var meðal annars stuðst við kenningar Gudschinsky, Frost, Rumelhart, Solity og Leimar. Enn fremur var sótt til NRP2000 rannsóknarinnar þar sem kemur fram mikilvægi þess að kennsluaðferðir í læsi feli í sér nálgun sem nái til allra þátta móðurmálsins. Þannig er vinna með tal, hlustun, lestur og ritun felld í eina heild undir hatti læsis. Enn fremur eru sértækir þættir tungumálsins, svo sem hljóðvitund, réttritun, skrift, orðaforði og lesskilningur tengd inn í ferlið. Í Súðavíkurskóla ætlum við að reyna að sameina byrjendalæsi í þemavinnu í öllum fögum, annan hvern mánuð, fyrir alla nemendur skólans og tveir kennarar kenna.
Einstaklingsmiðað nám verður í hávegum haft að venju en einnig verður áhersla á samvinnu og hópavinnu þar sem unnið er þvert á bekki og svo líka þar sem nemendur á sama stigi/aldri vinna saman til þess að efla samskipti og fá félagastuðning.
Samkennsla 1.-5. Bekkur. 4.Bekkur er með annað námsefni. Einstaklingsmiðað nám en samvinna og hópavinna þar sem unnið er þvert á bekki og svo líka þar sem nemendur á sama stigi/aldri vinna saman til þess að efla samskipti og fá félagastuðning. Nemendur í 1.-5. bekk eru í einni deild.
Í íslensku er áhersla lögð á undirstöðuatriðin í lestri, málfræði og skrift auk þess sem unnið er með Uppbyggingastefnuna, ýmis hugtök, rím, og annað sem tengist skólabyrjun. Tekið á öllum þeim helstu atriðum í íslenskri málfræði og málnotkun sem Aðalnámskrá kveður á um fyrir þennan aldurshóp. Mikil áhersla er lögð á talað mál.
Skipulag heimanáms:
Í vetur verður heimanám aðallega bundið við lestur og vinnubók, sögubók, stærðfræði og margföldunartaflan. Sett verður fyrir frá degi til dags í lestri, vinnubók og í stærðfræði. Nemendur lesa daglega hjá kennara. Foreldrar eru hvattir til að fylgjast með heimanámi barna sinna. Ekki er ætlast til að nemendur læri heima um helgar.
Leitast er við að hafa sem mesta samfellu í námi barnanna og reynt að tengja hverja námsgrein annarri. List- og verkgreinar fléttast hefðbundnum greinum s.s. stærðfræði, íslensku, samfélagsfræði og náttúrufræði. Lögð verður áhersla á samskipti barnanna og samkennd innan bekkjarinns.
Nemendur eru með samskiptabók sem gengur á milli skóla og heimilis. Samskiptabókina notar kennari til þess að koma skilaboðum til foreldra um skipulag heimanáms eða aðrar athugasemdir. Aðrar upplýsingar má finna á samskiptaforritinu namfus.is. Foreldrar eru hvattir til þess að nota samskiptabókina til að koma skilaboðum til kennara ef þurfa þykir. Athugasemdir ásamt mætingu verða skráðar í namfus.is.
___________________________________________________________________________
Íslenska Linda Lee
Námskipulag: Átta kennslustundir í viku og samkennsla 1.-5. bekk. Ýmsar lestra og vinnubækur sem er valið af kennara, en þetta er bækur sem nemendur lesa í skólanum hjá kennara og sem heimanám. Einnig verða ýmis verkefni frá kennara.
Námsmarkmið:
Námsmarkmið sem unnið er með á námstímanum:
-að nemendur:
Lestur
- auki lestrarhraða sinn
- öðlist betri lesskilning
- geti lesið sér til gagns og gamans
Ritun
-að nemendur;
- þjálfi skýra og læsilega rithönd
- auki skriftarhraða sinn
- þjálfist í að tjá skoðanir sínar og hugmyndir á rituðu máli
- átti sig á því að sögur hafa upphaf, miðju og endi
- læri að greina aðalatriði í texta
- þjálfist í að nota orðabækur og uppflettirit
- um stóran og lítinn staf
- ng og nk
- einfaldan og tvöfaldan samhljóða
- -n og –nn í ákveðnum greini nafnorða
- hv- í spurnarorðum
- læri að þekkja stafrófið
- læri einstaka y-orð L
Málfræði
-að nemendur;
- þekkja hugtökin bókstafur, hljóð, orð og málsgrein
- þekkja sérhljóða og samhljóða
- kynnast hugtökunum andheiti og samheiti, sérnöfn og samnöfn
- fá tækifæri til að nota tungumálið á fjölbreyttan hátt
- kunna og geta nýtt sér íslenska stafrófið
- geta greint í sundur og sett saman samsett orð
- geta gert greinarmun á eintölu og fleirtölu
Skrift.
Markmið að nemendur:
- öðlist traustan grunn að læsilegri og áferðarfallegri skrift
- læri tengda skrift eða tengikrókaskrift
- geti notað skriftargerðina sem þeim hefur verið kennd í frjálsri ritun
- nái góðum skriftarhraða og vandi allan frágang
Námsmat:
Lesskimunarpróf er lögð fyrir þrisvar yfir skólaárið sept—jan –maí til að fylgjast með framförum. Lestrarpróf verður lagt fyrir eftir hvorrar annar og gefið fyrir í tölustöfum. Ábyrð, þrautsegja, frumkvæði, áræðni, jákvæðni, framkoma, samskipti og samstarf. Íslenskuprófi sem nemendur fara í lok hvorrar annar og gefið fyrir bókstöfum A, B+, B, C+, C, D.
Námsgögn: Lesrún
Málfræðibókin mín 1 hefti
Lesrún 2
Skrift 4
Hæfniviðmið:
- beitt skýrum og áheyrilegum framburði,
- átt góð samskipti, hlustað og sýnt kurteisi.
- lesið ævintýri, sögur og ljóð ætluð börnum,
- valið bók eða annað lesefni og lesið sér til ánægju
- dregið rétt til stafs og skrifað skýrt og læsilega,
- beitt töluðu máli og rituðu af nokkru öryggi og ræður yfir orðaforða og málskilningi sem hæfir þroska
______________________________________________________________________________________
Stærðfræði Linda Lee
Námsskipulag: Sex kennslustundir á viku og samkennsla 1.- 5. bekkur. Leitast er við að mæta hverjum nemanda þar sem hann er staddur og vinna út frá því. Unnið er í lotukerfi í Sprota og eftir hvern kafla er könnun.
Námsmarkmið:
Námsmarkmið sem unnið er með á námstímanum:
-að nemendur;
- geta skrifað tölur 0-100
- vinna með samlagningu
- vinna með frádrátt
- þekkja talnalínu og geta notað hana
- geta unnið úr lesdæmum
- geta notað vasareikni
- þekkja einingu, tug og hundrað
- þekkja sléttar tölur og oddatölur
- getur speglað og fundið speglunarás
- geta fundið tvöfalt meira og helmingi minna
- þekkja skiptingu ársins í árstíðir, vikur, daga og mánuði
- þekkja á klukku
Námsmat:
Ábyrgð, þrautsegja, frumkvæði, áræðni, jákvæðni, framkoma, samskipti og samstarf. Lotukannanir verða lagðar fyrir eftir hvern kafla til að athuga hvort nemendur hafi tileinkað sér námsefnið. Stærðfræðipróf sem nemendur fara í lok hvorrar annar og gefið fyrir bókstöfum A, B+, B, C+, C, D.
Námsgögn:
Sproti 4 a og b bæði vinnubók og æfingabók ásamt ýmsum verkefnum frá kennara.
Hæfniviðmið:
- tekið þátt í samræðum um spurningar og svör sem eru einkennandi fyrir stærðfræði,
- túlkað og notað einföld stærðfræðitákn, þar með talið tölur og aðgerðamerki og tengt þau við daglegt mál,
- notað stærðfræði til að finna lausnir á verkefnum sem takast þarf á við í daglegu lífi og gerir sér grein fyrir verðgildi peninga,
- reiknað með náttúrlegum tölum á hlutbundinn og óhlutbundinn hátt
Samfélagsfræði: Linda Lee
Námsskipulag: Fjórar tímar í viku og samkennsla með 1.-5. bekk.
Námsmarkmið:
Námsefnið er fjölbreytt og víða komið við sögu. Stefnt er að því að hvert og eitt barn vakni til umhugsunar um umheiminn í víðu samhengi og byggi ofan á þá kunnáttu sem fyrir er.
- vekja áhuga nemenda á yngsta stigi í náttúru- og samfélagsgreinum og virkja innri áhugahvöt þeirra
- efla læsi í víðu samhengi s.s. merkjalæsi, myndalæsi, kortalæsi, samfélagslæsi, samskiptalæsi og líkamstjáningu
- virkja ímyndunarafl og sköpunargáfu nemenda ásamt gagnrýninni hugsun
- þjálfa nemendur til vinna sjálfstætt og í samstarfi við aðra
- hvetja til sjálfstæðrar þekkingarleitar
- efla ritun og orðaforða nemenda
- samþætta yfirferðina við skólastarfið í heild sinni, nærumhverfið og samfélagið
Lögð er áhersla á samþættingu námsgreina og fjölbreytta kennsluhætti s.s. uppgötvanir, rannsóknir, ritun, lestur, samræður, þrautir og leiki.
Námsmat:Tekin inn í einkunn lykilhæfni: ábyrgð, þrautsegja, frumkvæði, áræðni, jákvæðni, framkoma, samskipti og samstarf, tjáning. Einkunn er gefin í bókstöfum í lok hvorrar annar, A, B+, B, C+, C, D.
Námsgögn:
Land og líf
Halló Heimur 2
Fylgiskjala á vef s.s. kveikja, myndabanka, orðalista, veggspjalda og kennsluleiðbeininga.
Hæfniviðmið:
að nemandi getur:
- nefnt dæmi um einkenni og stöðu Íslands í heiminum í ljósi legu, sögu og menningar,
- sagt frá einkennum og sögu heimabyggðar og tengslum við önnur svæði á Íslandi,
- gert sér grein fyrir nokkrum einkennum þess að náttúrufar breytist vegna ytri áhrifa,
- sagt frá dæmum, um hvernig loftslag og gróðurfar hafa áhrif á hvernig fólk lifir,
- bent á dæmi um áhrif tækni og framkvæmda á mannlíf og umhverfi,
- áttað sig á hlutverki landakorta og notagildi þeirra,
- áttað sig á mikilvægi fjölskyldunnar og fjölbreytni fjölskyldugerða í samfélagi manna,
- varast hættur á heimili sínu og í nágrenninu
_____________________________________________________________________________________
Upplýsinga og tæknimennt: Linda Lee
Námskipulag:- Tveir tímar í viku og samkennsla með 1.-5. bekk. Nemendur fá þjálfun í undirstöðuatriða í fingrasetningu og lyklaborðs, upplestur af kennara, stafsetningaæfingar og þjálfun að senda tölvupóst, notkun ýmis forrita og þá aðallega kennsluforrita af vef mms.is. Ýmis verkefni frá kennara.
Námsmarkmið:
að nemandi:
- þekkja helstu hluta tölvu og hafa tileinkað sér íslenskan orðaforða þar um
- geta notað tölvu til að skrifa og prenta út eigin texta
- geta ritað einfaldan texta í ritvinnslu
- geta skeytt myndum inn í texta
- hafa lært grunnatriði í fingrasetningu á tölvu
- kunna að vista skjöl og ná í vistuð skjöl
- hafa lært grunnatriði í meðferð og notkun tölvu
- kunna einfalda leit í upplýsingaveitu.
Námsmat:-
Tekin inn í einkunn lykilhæfni: ábyrgð, þrautsegja, frumkvæði, áræðni, jákvæðni, framkoma, samskipti og samstarf, tjáning. Einkunn er gefin í bókstöfum í lok hvorrar annar, A, B+, B, C+, C, D.
Hæfniviðmið
að nemandi getur:
- beitt undirstöðuatriðum í fingrasetningum
- sýnt frumkvæði og tekið þátt í samvinnuverkefnum undir leiðsögn
- leitað upplýsinga og nýtt við verkefnavinnu
- nýtt rafrænt og gagnvirkt námsefni
- nýtt upplýsingatækni og forrit við uppbyggingu einfaldra verkefna
______________________________________________________________________________________
Handmennt: Anna Sig
Námsskipulag: Tveir tímar annað salgið í vetur, samkennsla með 1.- 4. bekk. Verklegt nám á að stuðla að alhliða þroska nemenda og búa þá undir daglegt líf og frekara nám á sviði verkgreina. Það á að gefa þeim tækifæri til að vinna með ólík efni og verkfæri og þroska þannig nemendur á mörgum sviðum. Áhersla er lögð á að efla sköpunargáfu þeirra með því að hvetja nemendur til að leita nýrra hugmynda eða úrlausna. Einnig er lögð áherhersla á að nemendur læri að líta á og meta eigin verk og ákvarðanir gagnrýnum augum.
Námsmarkmið:
- Þjálfi fínhreyfingar
- Skapa
- Sýna sjálfstæði vinnubrögð
- Að kunna almenn vinnubrögð í handmennt
- Að kunna frágang á því verkefni sem valið er
Hæfniviðmið:
- skreytt textílvinnu á einfaldan hátt
- sagt frá nokkrum tegundum textílefna
- fjallað um mismunandi klæðnað fólks með tilliti til veðurfars, athafna og tilefna
Hæfniviðmið aðalnámskrár eru höfð til grundvallar í námsmati. Auk þess er metið hvort nemendur sinna vinnu sinni/halda sér vel að verki. Námsmat fer fram með símati og leiðsagnarmati. Einnig er lögð áhersla á sjálfsmat nemenda þar sem þeir hafa í huga þætti eins og sjálfstæði, vinnusemi, vönduð vinnubrögð, frumkvæði og samskipti. Einkunn gefið í bókstöfum A, B+, B, C+, C, D.
___________________________________________________________________________
Myndmennt: Linda Lee
Námskipulag: Tveir tímar í viku. Samkennsla 1.-5. bekkur . Kennsluaðferðir eru sýnikennsla, sköpun, verklegar æfingar og umræður. Áherslu lögð á sköpunargleði, meðhöndlum verkfæra og fjölbreyttvinnubrögð.
Námsmarkmið:
- aðeflanemendur í teikninguogsköpun
- þjálfun í notkunmismunandiefni
- örfaímyndunaraflið
Námsmat: Leiðsagnarmatjafnt og þétt yfir veturinn. Í lok hvorrar annar verður niðurstöður dregnar saman og metnar samkvæmthæfniviðmiðum sem valin hefur verið úr Aðalnámskrá. Einkunn gefin í bókstöfum.
Námsgögn:
Verkefni tekin úr Ég sé með teikningu - mms.is (rafbók eftir Björk Eiriksdóttir)
Markviss Myndörvum fyrir börn (Aðalheiður Ólaf Skarphéðinsdóttir)
Verkefni frá kennari
Efni í ýmsu formi.
Hæfniviðmið
– að nemandi getur:
- skapaðmyndverk í ýmsumtilgangimeðmargvíslegumaðferðum
- tjáðtilfinningar, skoðaniroghugmyndaheimisínun í myndverki á einfaldan hátt
- unnið út frá kveikju við eigin listsköpun
__________________________________________________________________________
Íþróttir Linda Lee
Námskipulag: - Tvær kennslustundir í viku. Samkennsla í 1.- 4. bekkur. Líkamlegir þættir s.s. þol, kraftur ogliðleiki verða virkjaðir á sem fjölhæfastan máta við ýmsum þol -, styrktar-, og liðleikaæfingum. Hver tími er þannig upsettur: Uphitun , aðalþættir og niðurlag.
Námsþættir eru:
- boltaleikirogýmsaraðrirleikir
- dansleikir
- frjálsleikir
- stöðvavinna
- leikfimi
Námsmarkmið:
Að efla sjálfsmynd, hreyfigetu, áræðni og félagsþroska nemenda.
Námsmat:
Virkni, getu og framkomu eru metin. Einkun gefin í bókstöfum I lok annar – A,B+, B, C+, C, D
Námsgögn:
Ýmis tæki og áhöld
Hæfniviðmið
Félagslegir þættir:
Að nemandi getur:
- unniðmeðþærtillfinningarsemfylgjaaðvinnaog tapa í leikjum
- skiliðskipulagshugtök í skólaíþróttumogfariðeftirleikreglum
Líkamsvitund, leikni og afkastageta:
að nemandi getur :
- gertæfingarsemreyna á þol
- sýntnokkraboltafærniogtekiðþátt í nokkrummismunandiboltaleikjum
gert hreyfingar sem reyna á stöðujafnvegi og hreyfijafnvegi
______________________________________________________________________________________
Náttúrufræði Linda Lee
Námskipulag:
Þrjár kennslustundir í viku. Samkennsla 1.-5. bekkur. 4.Bekk er með annað námsefni. Námsaðferðir erusýnikennsla, útikennsla, hópavinna, umræður og vinnubækur. Fjallað eru um himingeiminn, lífvera í okkarumhverfi, árstíðirnar og hringrásir í náttúrinni og mannslíkaminn.
Námsmarkmið:
Að efla forvitni og áhuga nemenda á umhverfi sínu. Nemendur læri að þekkja, skilja og skynja náttúruna í kringum sig.
Námsmat:
Leiðsagnarmat. Virkni, hópverkefni og vinnubækur eru metin. Í lok hvorrar annar verður niðurstöður dregnarsaman og metnar samkvæmt hæfniviðmiðum sem valin hafa verið úr Aðalnámskrá. Einkunn gefin í bókstöfum A, B+, B, C+, C, D.
Námsgögn:
- Refurinn
- Halló Heimur 2
- Fuglavefurinn
- Náttúrufræðistofnun Íslands
- Myndbönd af neti
Hæfniviðmið
Að búa á jörðinn
að nemendur getur:
- lýstbreytingum á náttúruÍslandseftirárstíðumogáhrifumþeirra á lífsskilyrðifólks
- lýst algengustu lífverum í nánasta umhverfi sínu
Lífsskilyrði manna
að nemendur getur:
- Útskýrt á einfaldan hátt byggingu og starfsemi mannslíkamans
______________________________________________________________________________________
Lykilhæfni Súðavíkurskóla
Samkennd: Er jákvæður og kurteis í samskiptum, sýnir tillitssemi og hjálpsemin og stuðlar að vellíðan annarra. Getur sett sig í spor annarra og sýnt umhyggju.
Ábyrgð: Skilar verkefnum á réttum tíma, axlar ábyrgð á námi sínu, nýtir tímann vel og gerir sitt besta.
Frumkvæði: Leitar lausna og veitir skapandi hugsun. Sýnir frumkvæði og áræðni við ólíkar námsaðstæður. Er áhugasamur og jákvæður í viðhorfi.
Samskipti: Getur notað sér sáttarleið Uppbyggingarstefnunnar. Virkur í samstarfi, virðir jafnrétti, skoðanir og gildi annarra.
Námsvitund: Getur sett sér markmið og búið til áætlanir sjálfur. Forgangsraðar og lýkur verkefnum. Er gagnrýninn á eigin vinnubrögð og lærir af reynslunni.
Tjáning: Tekur þátt í samræðum og rökræðum. Tjáir hugsanir, tilfinningar og skoðanir sínar munn- og skriflega. Er skýrmæltur og finnur tjáningu sinni jákvæðan farveg.
Upplýsinganotkun: Meðhöndlar upplýsingar úr námsefninu sem og öðrum miðlum á ábyrgan og gagnrýninn hátt. Deilir fúslega upplýsingum, gögnum og þekkingu. Getur leitað sér upplýsinga úr ýmsum miðlum til gagns
Lykilhæfni skólans er kynnt fyrir nemendum í upphafi annar. Nemendur setja sér markmið, bæði félagsleg og námsleg, og hafa önnina til að ná þeim markmiðum með leiðsagnarmati frá kennara. Í lok annar er farið yfir lykilhæfni með nemendum og metið hvort markmiðum hafi verið náð á tímabilinu. Lykilhæfnin er síðan tekin til umfjöllunar í foreldraviðtölum í lok hvorrar annar. Einkunn í lykilhæfni gefin í bókstöfum.
______________________________________________________________________________
Heimasíða skólans: Súðavíkurskóli (sudavikurskoli.is) Vinsamlegast kynnið ykkur heimasíðu skólans til að fá upplýsingar og fréttir úr skólastarfinu.
Netfang skólans: annalind@sudavikurskoli.is Sími: 450 5910
Umsjónarkennari: Linda Lee Netfang: linda@sudavikurskoli.is