Kennsluskipulag vetrarins
Við höldum áfram með byrjendalæsi sem er samvirk nálgun í læsiskennslu barna á yngsta stigi. Samvirk aðferð fellur mitt á milli eindaraðferða og heildaraðferða. Eindaraðferðir byggja á því að umskráningarferlið sé línulegt sem leiðir til þess að tæknilegir þættir læsis eru þjálfaðir í aðskildum einingum og í ákveðinni röð. Gengið er út frá því að ferlið byrji á ritmálinu með því að umskrá rittákn í málhljóð. Nemendur læra fyrst bókstafina og hljóð þeirra og tengja þá síðan í orð og orð í setningar og þær síðan í merkingabærar heildir. Hljóðaaðferðin er ein þeirra aðferða sem tilheyra eindaraðferðinni. Heildaraðferðin er orðaaðferð sem gengur í eina átt þ.e. frá hinu stóra til hins smáa.
Byrjendalæsi sækir innblástur til kenninga um hugsmíðahyggju og nám án aðgreiningar og gert er ráð fyrir að börn læri best í samfélagi jafningja, með samvinnu, stigskiptum stuðningi og hvers konar námsaðlögun sem auðveldar kennurum að koma til móts við ólíkar þarfir þeirra og áhugasvið. Við samsetningu Byrjendalæsis var meðal annars stuðst við kenningar Gudschinsky, Frost, Rumelhart, Solity og Leimar. Enn fremur var sótt til NRP2000 rannsóknarinnar þar sem kemur fram mikilvægi þess að kennsluaðferðir í læsi feli í sér nálgun sem nái til allra þátta móðurmálsins. Þannig er vinna með tal, hlustun, lestur og ritun felld í eina heild undir hatti læsis. Enn fremur eru sértækir þættir tungumálsins, svo sem hljóðvitund, réttritun, skrift, orðaforði og lesskilningur tengd inn í ferlið. Í Súðavíkurskóla ætlum við að reyna að sameina byrjendalæsi í þemavinnu í öllum fögum, annan hvern mánuð, fyrir alla nemendur skólans og tveir kennarar kenna.
Einstaklingsmiðað nám verður í hávegum haft að venju en einnig verður áhersla á samvinnu og hópavinnu þar sem unnið er þvert á bekki og svo líka þar sem nemendur á sama stigi/aldri vinna saman til þess að efla samskipti og fá félagastuðning.
Skipulag heimanáms:
Í vetur verður heimanám aðallega bundið við lestur og vinnubók, sögubók, stærðfræði, auk þess sem foreldrar fá ,,heimabók, til samlestrar með barni/börnum sínum. Sett verður fyrir frá degi til dags í lestri, vinnubók og í stærðfræði. Nemendur lesa daglega hjá kennara. Foreldrar eru hvattir til að fylgjast með heimanámi barna sinna. Ekki er ætlast til að nemendur læri heima um helgar.
Leitast er við að hafa sem mesta samfellu í námi barnanna og reynt að tengja hverja námsgrein annarri. List- og verkgreinar fléttast hefðbundnum greinum s.s. stærðfræði, íslensku, samfélagsfræði og náttúrufræði. Lögð verður áhersla á samskipti barnanna og samkennd innan bekkjarins.
Nemendur eru með samskiptabók sem gengur á milli skóla og heimilis. Samskiptabókina notar kennari til þess að koma skilaboðum til foreldra um skipulag heimanáms eða aðrar athugasemdir. Aðrar upplýsingar má finna á samskiptaforritinu namfus.is. Foreldrar eru hvattir til þess að nota samskiptabókina til að koma skilaboðum til kennara ef þurfa þykir. Athugasemdir ásamt mætingu verða skráðar í namfus.is.
Íslenska Linda Lee
Námskipulag:
Byrjendalæsi felur í sér nálgun sem nær til allra þátta móðurmálsins. Þannig er unnið með tal, hlustun, lestur og ritun felld í eina heild undir hatti læsis. Enn fremur eru sértækir þættir tungumálsins, svo sem hljóðvitund, réttritun, skrift, orðaforði og lesskilningur tengd inn í ferlið. Í Súðavíkurskóla ætlum við að reyna að sameina byrjendalæsi í þemavinnu í öllum fögum, annan hvern mánuð, fyrir alla nemendur skólans og tveir kennarar kenna.
Annan hvern mánuð er unnið með hefðbundnar skólabækur eins og Ritrún 1, Skrift 1, Listin að lesa og skrifa ásamt verkefnum frá kennara. Bækurnar er ætlað að mæta markmiðum í aðalnámskrá grunnskóla um að nemendur öðlist jákvætt viðhorf til móðurmálsins, kynnist byrjunaratriðum í málfræði og geti skrifað skýrt og læsilega, styrkja málkennd og grunnatriði í málfræði og ritun.
Námsmarkmið:
Námsmarkmið sem unnið er með á námstímanum:
-að nemendur;
Lestur
- lesa orð og finna mynd, finna orð í orði og búa til orð úr orði
- finna orðhluta í samsettum orðum
- lesa og svara spurningum
- auka leshraða ∙ þjálfa lesskilning
- vinna með eigin frásagnir og sögur
Ritun
-að nemendur;
- geta skrifað eigin texta
- gera greinarmun á stórum og litlum staf í texta
- þekkja bókstafi, orð
- nota stóran staf í upphafi málsgreina
- hafa bil á milli orða
- stafirnir sitja rétt á línum
- draga rétt til stafs
Málfræði
-að nemendur;
- þekkja hugtökin bókstafur, hljóð, orð og málsgrein
- þekkja sérhljóða og samhljóða
- kynnast hugtökunum andheiti og samheiti, sérnöfn og samnöfn
- fá tækifæri til að nota tungumálið á fjölbreyttan hátt
- kunna og geta nýtt sér íslenska stafrófið
- geta greint í sundur og sett saman samsett orð
- geta gert greinarmun á eintölu og fleirtölu
Námsefni:
Ýmsar lestrar- og vinnubækur við hæfi hvers og eins.
Námsmat:
Lesskimunarpróf er lögð fyrir þrisvar yfir skólaárið sept—jan –maí til að fylgjast með framförum. Lestrarpróf verður lagt fyrir eftir hvorrar annar og gefið fyrir í tölustöfum. Ábyrgð, þrautsegja, frumkvæði, áræðni, jákvæðni, framkoma, samskipti og samstarf. Íslenskuprófi sem nemendur fara í lok hvorrar annar og gefið fyrir tölustöfum A, B+, B, C+,C, D
Námsgögn:
Rítrún 1, Vinnubókin mín, skrift 1 og 2, Lestralandið + vinnubók ásamt verkefnum frá kennara. Ýmsar íslenskar bækur teknar fyrir í byrjendalæsi.
Hæfniviðmið:
- beitt skýrum og áheyrilegum framburði,
- átt góð samskipti, hlustað og sýnt kurteisi.
- dregið rétt til stafs og skrifað skýrt og læsilega
- beitt töluðu máli og rituðu af nokkru öryggi og ræður yfir orðaforða og málskilningi sem hæfir þroska
_________________________________________________________________________________________
Stærðfræði Linda Lee
Námsskipulag:
Sex kennslustundir á viku og samkennsla með 2. – 5.bekk. Leitast er við að mæta hverjum nemanda þar sem hann er staddur og vinna út frá því. Bækurnar sem teknar eru fyrir í vetur verða Sproti vinnubók, Sprotiæfingabók og Stærðfræðispæjara. Unnið er í lotukerfi í Sprota og eftir hvern kafla er könnun. Stærðfræðispæjara er aukabók.
Námsmarkmið:
Námsmarkmið sem unnið er með á námstímanum:
-að nemendur;
- ∙ vinna með samlagningu
- ∙ vinna með frádrátt
- ∙ talnaleikni, fundið tölur á undan og eftir
- ∙ þekkja talnalínu og geta notað hana
- ∙ þekkja einingu og tug
- ∙ getur speglað og fundið speglunarás
- ∙ geta fundið tvöfalt meira og helmingi minna
Námsmat:
Ábyrgð, þrautsegja, frumkvæði, áræðni, jákvæðni, framkoma, samskipti og samstarf. Lotukannanir verða lagðar fyrir eftir hvern kafla til að athuga hvort nemendur hafi tileinkað sér námsefnið. Stærðfræðipróf sem nemendur fara í lok hvorrar annar og gefið fyrir bókstöfum A, B+,B,C+,C,D.
Námsgögn:
Sproti 1 a og b bæði vinnubók og æfingabók, stærðfræðispæjarar 1 ásamt ýmsum verkefnum frá kennara.
Hæfniviðmið:
- tekið þátt í samræðum um spurningar og svör sem eru einkennandi fyrir stærðfræði,
- túlkað og notað einföld stærðfræðitákn, þar með talið tölur og aðgerðamerki og tengt þau við daglegt mál,
- notað stærðfræði til að finna lausnir á verkefnum sem takast þarf á við í daglegu lífi og gerir sér grein fyrir verðgildi peninga,
- reiknað með náttúrlegum tölum á hlutbundinn og óhlutbundinn hátt
Samfélagsfræði Linda Lee
Námsskipulag: Fjórir tímar í viku og samkennsla með 2. -5. bekkur bekk. Halló heimur 1 er námsefni í samfélags og náttúrugreinum fyrir yngsta stig grunnskóla.
Í námsefninu fylgjumst við með níu börnum sem eru að stíga fyrstu skrefin á menntabrautinni. Þau eru fróðleiksfús og uppátækjasöm og enda á því að stofna Grúskfélag. Meðlimir Grúskfélagsins eru þverskurður af íslensku samfélagi, með ólíkan bakgrunn, reynslu og áhugasvið og saman lenda þau í ýmsum ævintýrum.
Námsmarkmið:
Námsefnið er fjölbreytt og víða komið við sögu. Stefnt er að því að hvert og eitt barn vakni til umhugsunar um umheiminn í víðu samhengi og byggi ofan á þá kunnáttu sem fyrir er.
- vekja áhuga nemenda á yngsta stigi í náttúru- og samfélagsgreinum og virkja innri áhugahvöt þeirra
- efla læsi í víðu samhengi s.s. merkjalæsi, myndalæsi, kortalæsi, samfélagslæsi, samskiptalæsi og líkamstjáningu
- virkja ímyndunarafl og sköpunargáfu nemenda ásamt gagnrýninni hugsun
- þjálfa nemendur til vinna sjálfstætt og í samstarfi við aðra
- hvetja til sjálfstæðrar þekkingarleitar
- efla ritun og orðaforða nemenda
- samþætta yfirferðina við skólastarfið í heild sinni, nærumhverfið og samfélagið
- að læra í gegnum hreyfingu, leiki og þrautir, inni sem úti.
Lögð er áhersla á samþættingu námsgreina og fjölbreytta kennsluhætti s.s. uppgötvanir, rannsóknir, ritun, lestur, samræður, þrautir og leiki.
Námsmat:
Tekin inn í einkunn lykilhæfni: ábyrgð, þrautsegja, frumkvæði, áræðni, jákvæðni, framkoma, samskipti og samstarf, tjáning. Einkunn er gefin í bókstöfum í lok hvorrar annar, A,B+,B,C+,C, D.
Námsgögn:
Halló Heimur 1
Efnið samanstendur af nemendabók og verkefnabók auk margvíslegra fylgiskjala á vef s.s. kveikja, myndabanka, orðalista, veggspjalda og kennsluleiðbeininga.
Hæfniviðmið:
Að nemandi getur:
- gert grein fyrir sig á hlutverk náttúru og umhverfis og mikilvægi gódrar umgengi
- sýnt tillitsemi og virðinga í samskiptum og samvinnu við aðra
- áttað sig á að fólk býr víð ólik fjölskylduform, hefur ólíkan bakgrunn og ber virðingu fyrir mismunandi lífsviðhorfum og lífsháttum
- áttað sig á hlutverk landakorta og notagildi þeirra
Upplýsinga- og tæknimennt Linda Lee
Námskipulag:
Tveir tímar í viku og samkennsla með 2. – 5. bekk. Nemendur fá þjálfun í undirstöðuatriða í fingrasetningu og lyklaborðs, upplestur af kennara, stafsetningaæfingar og þjálfun að senda tölvupóst, notkun ýmis forrita og þá aðallega kennsluforrita af vef mms.is. Ýmis verkefni frá kennara.
Námsmarkmið:
Að nemandi:
- þekkja helstu hluta tölvu og hafa tileinkað sér íslenskan orðaforða þar um
- geta ritað einfaldan texta í ritvinnslu
- hafa lært grunnatriði í fingrasetningu á tölvu
- hafa lært grunnatriði í meðferð og notkun tölvu
Námsmat:
Tekin inn í einkunn lykilhæfni: ábyrgð, þrautsegja, frumkvæði, áræðni, jákvæðni, framkoma, samskipti og samstarf, tjáning. Einkunn er gefin í bókstöfum í lok hvorrar annar, A ,B+,B,C+,C, D.
Hæfniviðmið:
- beitt undirstöðuatriðum í fingrasetningum.
- nýtt upplýsingatækni og forrit við uppbyggingu einfaldra verkefna
Handmennt: Anna Sig
Námsskipulag:
Tveir tímar annað slagið í vetur og samkennsla með 2. - 4. bekk. Verklegt nám á að stuðla að alhliða þroska nemenda og búa þá undir daglegt líf og frekara nám á sviði verkgreina. Það á að gefa þeim tækifæri til að vinna með ólík efni og verkfæri og þroska þannig nemendur á mörgum sviðum. Áhersla er lögð á að efla sköpunargáfu þeirra með því að hvetja nemendur til að leita nýrra hugmynda eða úrlausna. Einnig er lögð áhersla á að nemendur læri að líta á og meta eigin verk og ákvarðanir gagnrýnum augum.
Námsmarkmið:
- Þjálfi fínhreyfingar
- Skapa
- Sýna sjálfstæði vinnubrögð
- Að kunna almenn vinnubrögð í handmennt
- Að kunna frágang á því verkefni sem valið er
Hæfniviðmið:
- skreytt textílvinnu á einfaldan hátt
- sagt frá nokkrum tegundum textílefna
- fjallað um mismunandi klæðnað fólks með tilliti til veðurfars, athafna og tilefna
Hæfniviðmið aðalnámskrár eru höfð til grundvallar í námsmati. Auk þess er metið hvort nemendur sinna vinnu sinni/halda sér vel að verki. Námsmat fer fram með símati og leiðsagnarmati. Einnig er lögð áhersla á sjálfsmat nemenda þar sem þeir hafa í huga þætti eins og sjálfstæði, vinnusemi, vönduð vinnubrögð, frumkvæði og samskipti.
Myndmennt Linda Lee
Námskipulag:
Tveir tímar í viku. Samkennsla með 2. - 5. bekk . Kennsluaðferðir eru sýnikennsla, sköpun, verklegaræfingar og umræður. Áherslu lögð á sköpunargleði, meðhöndlum verkfæra og fjölbreytt vinnubrögð.
Námsmarkmið:
- aðeflanemendur í teikninguogsköpun
- þjálfun í notkunmismunandiefni
- örfaímyndunaraflið
Námsmat:
Leiðsagnarmat jafnt og þétt yfir veturinn. Í lok hvorrar annar verður niðurstöður dregnar saman og metnarsamkvæmt hæfniviðmiðum sem valin hefur verið úr Aðalnámskrá. Einkunn gefin í bókstöfum
.
Námsgögn:
Verkefni tekin úr Ég sé með teikningu - mms.is (rafbók eftir Björk Eiriksdóttir)
Markviss Myndörvum fyrir börn ( Aðalheiður Ólaf Skarphéðinsdóttir)
Verkefni frá kennari
Efni í ýmsu formi.
Hæfniviðmið
– Að nemandi getur:
- skapaðmyndverk í ýmsumtilgangimeðmargvíslegumaðferðum
- tjáðtilfinningar, skoðaniroghugmyndaheimisínun í myndverki á einfaldanhátt
- unniðútfrákveikjuviðeiginlistsköpun
Ípróttir Linda Lee
Námskipulag:
Tvær kennslustundir í viku. Samkennsla með 2.-5. bekk. Líkamlegir þættir s.s. þol, kraftur og liðleiki verðavirkjaðir á sem fjölhæfastan máta við ýmsum þol -, styrktar-, og liðleikaæfingum. Hver tími er þannigupsettur: Uphitun , aðalþættir og niðurlag.
Námsþættir eru:
- boltaleikirogýmsaraðrirleikir
- dansleikir
- frjálsleikir
- stöðvavinna
- leikfimi
Námsmarkmið:
Að efla sjálfsmynd, hreyfigetu, áræðni og félagsþroska nemenda.
Námsmat:
Virkni, getu og framkomu eru metin. Einkun gefin í bókstöfum I lok annar.
Námsgögn:
Ýmis tæki og áhöld
Hæfniviðmið
Félagslegir þættir:
Að nemandi getur:
- unniðmeðþærtillfinningarsemfylgjaaðvinnaog tapa í leikjum
- skiliðskipulagshugtök í skólaíþróttumogfariðeftirleikreglum
Líkamsvitund, leikni og afkastageta:
Að nemandi getur
- gertæfingarsemreyna á þol
- sýntnokkraboltafærniogtekiðþátt í nokkrummismunandiboltaleikjum
- gerthreyfingarsemreyna á stöðujafnvegioghreyfijafnvegi
-
Lykilhæfni Súðavíkurskóla
Samkennd: Er jákvæður og kurteis í samskiptum, sýnir tillitssemi og hjálpsemin og stuðlar að vellíðan annarra. Getur sett sig í spor annarra og sýnt umhyggju.
Ábyrgð: Skilar verkefnum á réttum tíma, axlar ábyrgð á námi sínu, nýtir tímann vel og gerir sitt besta.
Frumkvæði: Leitar lausna og veitir skapandi hugsun. Sýnir frumkvæði og áræðni við ólíkar námsaðstæður. Er áhugasamur og jákvæður í viðhorfi.
Samskipti: Getur notað sér sáttarleið Uppbyggingarstefnunnar. Virkur í samstarfi, virðir jafnrétti, skoðanir og gildi annarra.
Námsvitund: Getur sett sér markmið og búið til áætlanir sjálfur. Forgangsraðar og lýkur verkefnum. Er gagnrýninn á eigin vinnubrögð og lærir af reynslunni.
Tjáning: Tekur þátt í samræðum og rökræðum. Tjáir hugsanir, tilfinningar og skoðanir sínar munn- og skriflega. Er skýrmæltur og finnur tjáningu sinni jákvæðan farveg.
Upplýsinganotkun: Meðhöndlar upplýsingar úr námsefninu sem og öðrum miðlum á ábyrgan og gagnrýninn hátt. Deilir fúslega upplýsingum, gögnum og þekkingu. Getur leitað sér upplýsinga úr ýmsum miðlum til gagn
Lykilhæfni skólans er kynnt fyrir nemendum í upphafi annar. Nemendur setja sér markmið, bæði félagsleg og námsleg, og hafa önnina til að ná þeim markmiðum með leiðsagnarmati frá kennara. Í lok annar er farið yfir lykilhæfni með nemendum og metið hvort markmiðum hafi verið náð á tímabilinu. Lykilhæfnin er síðan tekin til umfjöllunar í foreldraviðtölum í lok hvorrar annar. Einkunn í lykilhæfni gefin í bókstöfum.
______________________________________________________________________________
Heimasíða skólans: Súðavíkurskóli (sudavikurskoli.is) Vinsamlegast kynnið ykkur heimasíðu skólans til að fá upplýsingar og fréttir úr skólastarfinu.
Netfang skólans: annalind@sudavikurskoli.is Sími: 450 5910
Umsjónarkennari: Linda Lee Netfang: linda@sudavikurskoli.is
_________________________________________________________________________________________